Stúdentspróf: Menntaskólinn í Reykjavík árið 1965
Kennarapróf: Kennaraskóla Íslands 1966
Sérkennarapróf: KHÍ 1989
Þátttaka í námskeiðum í tölvum, íslensku, stærðfræði, samfélagsfræði, starfsleikni, dönsku, námskeið um sértæka lestrarerfiðleika (dyslexíu), vanrækt börn, misþroska börn, ofvirkni, varðandi einhverfu, um söguaðferðina(story line), gerð lestrarprófa og gæðamat o. Fl.
Námskeiðin haldin á Íslandi, Danmörku, Hollandi, Skotlandi og Bandaríkjunum.
Nám í Myndlistaskólanum í Reykjavík um áraraðir.
Almenn kennsla í Langholtsskóla, Breiðholtsskóla, Kópavogsskóla og Flataskóla á árunum 1966 - 2008.
Gegndi trúnaðarstörfum, starfaði sem árgangastjóri, fagstjóri í sérkennslu og gegndi um stutt skeið starfi aðstoðarskólastjóra í Flataskóla í afleysingum.
Tók þátt í þróunarstarfi í stærðfræði, í lífsleikni og í tengslum við samskipti og gæðamat.
Vann ásamt Ingibjörgu Símonardóttur talmeinafræðingi og tveim sérkennurum í Hofsstaðaskóla, þeim Áslaugu Hartmannsdóttur og Eiríki við þýðingu og staðfærslu á námsefni sem þjálfa mál– og hljóðvitund.
Þessi verkefni hjálpa á markvissan hátt m.a. börnum með seinkaða lestrarfærni að þroska málvitund sína.
Samning léttlestrarefnis, texta kennsluforrits, vinnubóka og sögubóka sem tengjast lífsleikni.
Arnheiður hlaut Íslensku menntaverðlaunin 2008. Sjá nánar