Bókin Óboðnir gestir kemur í kjölfar bókarinnar Fimm ævintýri (útg. 2006, uppseld).
Óboðnir gestir fjallar um tröllabörnin Óþekktarorm, Græðgi, Fýlupúka, Leti og Jötuninn mikla. Öll leggja þau leið sína í mannheima og leitast við að taka völdin í sínar hendur.
Ætlunin með sögunum er m.a. vekja umhugsun og gefa börnum, foreldrum og kennurum tækifæri til að bera kennsl á þessa gesti sem eiga það til að læðast að okkur, jafnvel taka völdin og stjórna okkur um hríð.
Aftast í bókinni fylgja hverri sögu nokkrar spurningar.
Bls. 80
Systkinunum Báru og Bessa kemur vel sama og þau búa við góðar aðstæður að flestra áliti, en ekki er allt sem sýnist.
Skuggi áfengisvandans hvílir yfir þeim.
Gera má ráð fyrir að fjórða hvert barn búi við alkóhólisma.
Þessi börn ræða ekki um vanda sinn, bera harm sinn í hljóði.
Aftast í bókinni er bent á aðila sem börn geta leitað til við erfiðar aðstæður í von um að það gæti rofið einangrun þeirra.
Bls. 70
Texti og myndir: Arnheiður Borg-Útgefandi: K. Borg ehf.-Söluaðili: A4 Smáratorgi 1