Arnheiður Borg: Útgefið efni

Legðu við hlustir er verkefnabók sem þjálfar á markvissan hátt mál- og hljóðvitund barna. Hún er þýdd og staðfærð úr bókinni Auditory Processing Activities.

Höfundar hennar eru JoAnn H. Jeffries og Roger D Jeffries. Þýðingu og staðfæringu önnuðust:

  • Arnheiður Borg, sérkennari
  • Áslaug Hartmannsdóttir, sérkennari
  • Eiríkur Ellertsson, sérkennari
  • Ingibjörg Símonadóttir talmeinafræðingur

(útg. 2003)
Bókin er til sölu á netfanginu aslaugh@xnet.is


 

Bókin sem er u.þ.b.300 bls. skiptist í sex kafla:

  • heyrnræna greiningu
  • heyrnræna samtengingu
  • heyrnræna skynjun
  • heyrnræn tengsl
  • heyrnrænan skilning
  • heyrnrænt minni

Verkefnin eru einkum ætluð nemendum á grunnskólaaldri en mörg verkefni henta þó einnig elstu börnum leikskólans.


Efni sem tengist lífsleikni:

Ormagull : Útg. Mál og menning 1994. Ein af þrem verðlaunasögum sem gefin var út í tilefni af ári fjölskyldunnar.

Ævintýrið um Birtu og Skugga (um jákvæðni og neikvæðni). Útg. Mál og menning 1997. Uppseld

Valli á enga vini: Mál og menning 2004. Uppseld

Fimm ævintýri Útg. K.Borg ehf. 2006 (okkar innri maður). Uppseld

Bækurnar um Rut (4. bækur) K.Borg efh. 2008 Söluaðili: A4 Smáratorg 1

Óboðnir gestir Útg. K.Borg efh. 2009 Söluaðili: A4 Smáratorg 1

Ekki segja frá Útg. Borg efh. 2009 Söluaðili: A4 Smáratorg 1


Íslenska - Léttlestrarefni

Listin að lesa og skrifa:

Útg: Námsgagnastofnun 1997– 2007 Léttlestrarefni fyrir grunnskóla, 24 leshefti ásamt 4 vinnubókum, unnar af Arnheiði Borg og Rannveigu Löve annars vegar en hins vegar Arnheiði Borg og Sigrúnu Löve 2006 - 2007 sem unnu einnig 10 örbækur 2006 - 2007.


Kennsluforrit - Vinnubækur

Glói geimvera. (útg 2003)Kennsluforrit fyrir byrjendur í lestri og Glói á lestrareyju (útg 2006 ) er sjálfstætt framhald af forritinu Glói lærir að lesa. Þar er lögð áhersla á að þjálfa lestur, lesskilning, rím, andheiti og samheiti. Báðir diskarnir eru útg. af Námsgagnastofnun.

Höfundur texta: Arnheiður Borg

Hönnun: Næst ehf.


Verkefni í íslensku.

Vinnubók AB (64 bls.) og Vinnubók AB 2 (60 bls.), vinnubókarblöð sem vistuð eru á geisladisk.

Loftur og Gullfuglarnir Vinnubók , útg. Námsgagnastofnun 2007. Höfundar: Arnheiður Borg og Sigrún Löve.